Undirbúningur fyrir síðari fræðslufund vetrarins er nú í fullum gangi, en fundurinn ber yfirskriftina „gæðastundir og betri samskipti“. Yfirskriftin tengist dagskrá fundarins en m.a. verða vinnustofur um tímastjórnun og samskipti ásamt fræðslu um góð tölvupóstssamskipti. Auk þess hefur verið bryddað uppá þeirri nýbreytni að úthluta verkefnum til þeirra deilda sem funda tvisvar í mánuði. Til flutningsins fá deildirnar 15 mín. til að fræða gesti fundarins og getað túlkað efnið á hvern þann hátt sem þeim dettur í hug. Þessi nýbreytni hefur mælst vel fyrir og verður spennandi að sjá hvað deildirnar bjóða uppá. Þar sem allt er leyfilegt í þessu verkefni má alveg gera ráð fyrir glærukynningum, söng, dansi og þess vegna leikþáttum svo eitthvað sé nefnt, en hugmyndaauðgi félaga eru engin takmörk sett.
Fundurinn verður haldin í glæsilegum salarkynnum safnaðarheimilis Guðríðarkirkju við Kirkjustétt 18 í Grafarholti. Móttaka gesta og skráning hefst kl. 9:30 og verður fundur settur kl. 10 og stendur til kl. 16. Verð fyrir POWERtalk félagar er aðeins kr. 3000 og innifalið eru öll sú fræðsla og skemmtun sem félagar bjóða uppá ásamt léttum hádegisverði og kaffiveitingum.
Skráning er hafin í öllum deildum og stefnir allt í góða þátttöku, enda segir máltækið „fegurð sækir í fegurð“. Þeir félagar sem búa svo vel að eiga gjafakort samtakanna eru hvattir til að muna eftir að nota þau og koma með á fundinn.
Undirbúningur fyrir síðari fræðslufund vetrarins er nú í fullum gangi, en fundurinn ber yfirskriftina „gæðastundir og betri samskipti“. Yfirskriftin tengist dagskrá fundarins en m.a. verða vinnustofur um tímastjórnun og samskipti ásamt fræðslu um góð tölvupóstssamskipti. Auk þess hefur verið bryddað uppá þeirri nýbreytni að úthluta verkefnum til þeirra deilda sem funda tvisvar í mánuði. Til verkefnaflutningsins fá deildirnar 15 mín. til að fræða gesti fundarins og getað túlkað efnið á hvern þann hátt sem þeim dettur í hug. Þessi nýbreytni hefur mælst vel fyrir og verður spennandi að sjá hvað deildirnar bjóða uppá. Þar sem allt er leyfilegt má alveg gera ráð fyrir glærukynningum, söng, dansi og þess vegna leikþáttum svo eitthvað sé nefnt, en hugmyndaauðgi félaga eru engin takmörk sett.